27.8.2008 | 23:23
Góður sigur
Aldeilis góður sigur hjá stelpunum í kvöld, en frekar harðsóttur. Það sem vakti helst athygli mína var ein sú besta mæting sem ég hef séð á kvennalandsleik í körfubolta hér á landi, en kunnugir sögðu mér að um 600 manns væru í húsinu, besta mál.
Stóru prentmiðlarnir mættu að sjálfssögðu á staðinn og gera leiknum væntanlega góð skil á morgun, mbl.is var með beina textalýsingu auk þess sem hægt var að fylgjast með leiknum á fibaeurope.com. Svo var karfan.is auðvitað á staðnum að venju. Aðeins önnur sjónvarpsstöðin mætti á staðinn og þá aðeins með myndatökuvél, enginn íþróttafréttamaður frá Stöð 2 eða RÚV var sjáanlegur til að taka comment eða segja frá leiknum sem er engan vegin nógu gott. Nú eru þrír landsleikir eftir hér á landi í þessarri törn og ég vona að sjónvarpsstöðvarnar sinni þeim betur, þetta er ekki boðlegt.
Semsagt, stelpurnar, Morgunblaðið, Fréttablaðið, mbl.is og karfan.is fá hrós fyrir sína frammistöðu í kvöld, sem og allir starfsmenn leiksins.
|
Íslenskur sigur á Sviss |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


gunnarfreyr
kalli33
golli
runarhi
ithrottir
sigurgeirorri
bleikaeldingin
karfa
nbablogg
skallinn





Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.