Færsluflokkur: Íþróttir

Góður sigur

Aldeilis góður sigur hjá stelpunum í kvöld, en frekar harðsóttur.  Það sem vakti helst athygli mína var ein sú besta mæting sem ég hef séð á kvennalandsleik í körfubolta hér á landi, en kunnugir sögðu mér að um 600 manns væru í húsinu, besta mál.

Stóru prentmiðlarnir mættu að sjálfssögðu á staðinn og gera leiknum væntanlega góð skil á morgun, mbl.is var með beina textalýsingu auk þess sem hægt var að fylgjast með leiknum á fibaeurope.com.  Svo var karfan.is auðvitað á staðnum að venju.  Aðeins önnur sjónvarpsstöðin mætti á staðinn og þá aðeins með myndatökuvél, enginn íþróttafréttamaður frá Stöð 2 eða RÚV var sjáanlegur til að taka comment eða segja frá leiknum sem er engan vegin nógu gott.  Nú eru þrír landsleikir eftir hér á landi í þessarri törn og ég vona að sjónvarpsstöðvarnar sinni þeim betur, þetta er ekki boðlegt.

Semsagt, stelpurnar, Morgunblaðið, Fréttablaðið, mbl.is og karfan.is fá hrós fyrir sína frammistöðu í kvöld, sem og allir starfsmenn leiksins.


mbl.is Íslenskur sigur á Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi möguleikar hjá Chicago

Það fór hjá Chicago eins og ég spáði, þeir tóku Derrick Rose með fyrsta valrétt í nýliðavalinu á dögunum og standa því frammi fyrir því að skipta burt Kirk Hinrich.  Heyrst hafa nokkrir skiptimöguleikar, en sá möguleiki sem ég er spenntastur fyrir eru skipti á Hinrich og Shawn Marion, þá fyrst væri mér farist að lítast á möguleika Bulls næsta vetur!

Ísland heimsækir Litháen

Fyrir nokkru bárust af því fréttir að íslenska karlalandsliðinu í körfubolta hefði verið boðið til Litháen að æfa og keppa þar gegn Ólympíuliði Litháa.  Þetta er sannarlega rausnarlegt boð af Litháum, en ég efast þó um að Íslendingar almennt átti sig á því hversu stórt þetta er.

Litháen er ein sterkasta körfuboltaþjóð þessa heims, hafa jafnan verið í verðlaunasætum á stórmótum og verma um þessar mundir 5. sæti heimslistans í körfubolta.  Ef við setjum þetta í samhengi, þá jafnast þetta á við að íslenska karlalandsliðið í fótbolta myndi fá sambærilegt boð frá Hollandi (Hollendingar eru í fimmta sæti heimslistans, m.a. fyrir ofan Argentínu, Tékkland, Portúgal og Frakkland).  Sannarlega rausnarlegt boð hjá Litháum.

Á næstu dögum kemur í ljós hvaða leikmenn Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, velur til fararinnar. Ég hlakka til. 


mbl.is Körfuboltalandsliðinu boðið til Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvænt...en samt ekki

Þetta hefur verið í umræðu í einhvern tíma, þ.e. að Supersonics flytji sig um set, mikill missir fyrir Seattle borg.  Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim muni vegna á nýjum stað.

Svo er það annað, Chicago Bulls urðu 6 sinnum meistarar á síðasta áratug, 1991, 1992, 1993, 1996, 1997 og 1998.  Þetta voru einu sex skiptin sem þeir komust í úrslit á þeim áratug.  Í fréttinni segir að Bulls og Supersonics hafi mæst í úrslitum 1995, sem er þá rangt, því það árið léku Houston Rockets og Orlando Magic til úrslita.


mbl.is Eigandi Seattle flytur liðið um set
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinny Del Negro tekur við Bulls

Þá eru mínir menn búnir að ráða sér þjálfara.  Þetta er búið að vera langt ferli, en að lokum er það frágengið.  Del Negro er að hefja sinn þjálfaraferil, hann hefur enga þjálfarareynslu, en hann lék 12 tímabil í NBA og þekkir því bransann.  Hann fær vandasamt verk, Bulls náðu ekki að stíga skref fram á við síðasta tímabil, sem voru gríðarleg vonbrigði.  Það er hans hlutverk að hjálpa tiltölulega ungu Bulls liði að taka skrefið fram á við.  Að fá fyrsta valrétt í nýliðavalinu hjálpar honum óneitanlega að komast af stað, þar sem ljóst er að hann getur valið mjög sterkan leikmann til að bæta við liðið. Ég hlakka til að sjá hvaða skref hann tekur til að styrkja liðið.


...og fólki finnst skrítið að það vanti alltaf dómara

Starfsumhverfið sem dómarar þurfa að vinna undir er á köflum ótrúlega ómannúðlegt.  Þessi frétt sýnir það ansi vel að sú pressa sem lögð er á hendur dómara er ótrúleg og að menn skuli hafa viljað drepa dómarann eftir kappleik er alveg út úr kortinu!
mbl.is Pólski forsætisráðherrann vildi drepa Howard Webb
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfið staða

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Roma eru komnir í erfiða stöðu eftir leik kvöldsins, þar sem þeir eru komnir 2-0 undir.  Næstu tveir leikir eru á heimavelli Roma og það er alveg nauðsynlegt að Roma klári þá tvo leiki.

Jón byrjaði leikinn vel í kvöld, setti tvö stig og tók fimm fráköst á fyrstu 7 leikmínútum sínum.  Því miður hitti hann ekki vel frekar en hingað til í úrslitakeppninni, en ég bind miklar vonir við að það breytist á heimavelli.  Næsti leikur er á sunnudag og sá leikur ræður úrslitum í einvíginu.  Vinni Siena leikinn, er nánast öruggt að þeir vinni einvígið, takist Roma að klára leikinn á sínum heimavelli opnast einvígið upp á gátt.

Endalaus spenna bara! 


mbl.is Jón Arnór tók 7 fráköst í naumum tapleik gegn Siena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur 2 í kvöld

Í kvöld mætast Siena og Roma öðru sinni í úrslitaeinvígi ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.  Roma tapaði fyrsta leiknum á gríðarsterkum heimavelli Siena og því er leikurinn í kvöld gríðarlega mikilvægur, því Roma þarf að vinna einn leik á heimavelli Siena (að því gefnu að þeir klári heimaleikina) til að sigra einvígið.  Yfirleitt er best að vinna annan af tveimur fyrstu á heimavelli andstæðingsins, það setur liðið í þægilegri stöðu, en svo er það bara þannig að það þarf að vinna þessa leiki til að verða meistari.

Karfan.is er að vanda með puttann á púlsinum og birti í morgun viðtal við Jón Arnór, ég hvet alla til að kíkja á það. 


KKÍ auglýsir eftir starfsmönnum

Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir tvö laus störf á skrifstofu sambandsins

Íþróttafulltrúi
Íþróttafulltrúi starfar á skrifstofu KKÍ og sinnir fjölbreyttum verkefnum
Helstu verkefni:

  • samskipti við FIBA Europe vegna félagaskipta erlendra leikmanna
  • umsjón með heimasíðu KKÍ
  • aðstoð við landsliðsnefndir KKÍ

Hæfniskröfur:

  • þjónustulund
  • metnaður
  • góð alhliða tölvukunnátta

Starf íþróttafulltrúa er nýtt starf og starfið felur því í sér ákveðna þróun starfssins til að byrja með.
Íþróttafulltrúi þarf að hafa gott vald á ensku.

Mótastjóri
Mótastjóri KKÍ starfar á skrifstofu KKÍ og sinnir fjölbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni:

  • halda utan um mótakerfi KKÍ
  • starfa með stjórn og nefndum sambandsins
  • afgreiða erindi sem berast skrifstofu

Hæfniskröfur:

  • skipulagshæfileikar
  • þjónustulund
  • metnaður
  • frumkvæði
  • góð alhliða tölvukunnátta

Starf mótastjóra er umfangsmikið starf.  Mótastjóri þarf að hafa mjög gott vald á ensku.

Umsókn, ferilskrá og mynd berist skrifstofu KKÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík eigi síðar en 9. júní nk. í lokuðu umslagi. Umsækjendur þurfa að tiltaka hvort starfið er sótt um. Nánari upplýsingar veitir Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ í síma 891-6220 eða í tölvupósti fridrik.runarsson@kki.is. Fullum trúnaði heitið.


Kom ekki á óvart

Því miður komu úrslitin í kvöld ekki á óvart, Siena tapaði aðeins þremur leikjum í vetur og eru gríðarsterkir á heimavelli.   Úrslitin eru í sjálfu sér ekki það slæm, viðbúið í fyrsta leik og Roma er þar sem búast mátti við, 1-0 undir.  Næsti leikur er á fimmtudag á heimavelli Siena og þá fá Romarmenn annað tækifæri til að stela leik af Siena.

Morgunblaðið hefur staðið sig vel í umfjöllun um úrslitakeppnina á Ítalíu.  Reyndar væri réttara að ég segi að mbl.is hafi staðið sig vel þar sem ég hef ekki séð Moggann í dágóðan tíma.  Visir.is hefur einnig flutt fréttir af Jóni og félögum og það er vel.  Ég er hins vegar skelfilega vonsvikinn með ljósvakamiðlana.  Það hefur ekkert komið fram á sjónvarps- eða í útvarpsfréttum um úrslitakeppnina á Ítalíu, það mætti halda að það væri bara ekkert í gangi.  Það er hins vegar nóg eftir af úrslitakeppninni og ég vona að þetta breytist.


mbl.is Jón Arnór með 5 stig í tapleik hjá Lottomatica Roma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband