Góður sigur

Aldeilis góður sigur hjá stelpunum í kvöld, en frekar harðsóttur.  Það sem vakti helst athygli mína var ein sú besta mæting sem ég hef séð á kvennalandsleik í körfubolta hér á landi, en kunnugir sögðu mér að um 600 manns væru í húsinu, besta mál.

Stóru prentmiðlarnir mættu að sjálfssögðu á staðinn og gera leiknum væntanlega góð skil á morgun, mbl.is var með beina textalýsingu auk þess sem hægt var að fylgjast með leiknum á fibaeurope.com.  Svo var karfan.is auðvitað á staðnum að venju.  Aðeins önnur sjónvarpsstöðin mætti á staðinn og þá aðeins með myndatökuvél, enginn íþróttafréttamaður frá Stöð 2 eða RÚV var sjáanlegur til að taka comment eða segja frá leiknum sem er engan vegin nógu gott.  Nú eru þrír landsleikir eftir hér á landi í þessarri törn og ég vona að sjónvarpsstöðvarnar sinni þeim betur, þetta er ekki boðlegt.

Semsagt, stelpurnar, Morgunblaðið, Fréttablaðið, mbl.is og karfan.is fá hrós fyrir sína frammistöðu í kvöld, sem og allir starfsmenn leiksins.


mbl.is Íslenskur sigur á Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi möguleikar hjá Chicago

Það fór hjá Chicago eins og ég spáði, þeir tóku Derrick Rose með fyrsta valrétt í nýliðavalinu á dögunum og standa því frammi fyrir því að skipta burt Kirk Hinrich.  Heyrst hafa nokkrir skiptimöguleikar, en sá möguleiki sem ég er spenntastur fyrir eru skipti á Hinrich og Shawn Marion, þá fyrst væri mér farist að lítast á möguleika Bulls næsta vetur!

Ísland heimsækir Litháen

Fyrir nokkru bárust af því fréttir að íslenska karlalandsliðinu í körfubolta hefði verið boðið til Litháen að æfa og keppa þar gegn Ólympíuliði Litháa.  Þetta er sannarlega rausnarlegt boð af Litháum, en ég efast þó um að Íslendingar almennt átti sig á því hversu stórt þetta er.

Litháen er ein sterkasta körfuboltaþjóð þessa heims, hafa jafnan verið í verðlaunasætum á stórmótum og verma um þessar mundir 5. sæti heimslistans í körfubolta.  Ef við setjum þetta í samhengi, þá jafnast þetta á við að íslenska karlalandsliðið í fótbolta myndi fá sambærilegt boð frá Hollandi (Hollendingar eru í fimmta sæti heimslistans, m.a. fyrir ofan Argentínu, Tékkland, Portúgal og Frakkland).  Sannarlega rausnarlegt boð hjá Litháum.

Á næstu dögum kemur í ljós hvaða leikmenn Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, velur til fararinnar. Ég hlakka til. 


mbl.is Körfuboltalandsliðinu boðið til Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvænt...en samt ekki

Þetta hefur verið í umræðu í einhvern tíma, þ.e. að Supersonics flytji sig um set, mikill missir fyrir Seattle borg.  Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim muni vegna á nýjum stað.

Svo er það annað, Chicago Bulls urðu 6 sinnum meistarar á síðasta áratug, 1991, 1992, 1993, 1996, 1997 og 1998.  Þetta voru einu sex skiptin sem þeir komust í úrslit á þeim áratug.  Í fréttinni segir að Bulls og Supersonics hafi mæst í úrslitum 1995, sem er þá rangt, því það árið léku Houston Rockets og Orlando Magic til úrslita.


mbl.is Eigandi Seattle flytur liðið um set
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er lágvöruverslun?

Ég hef oft velt því fyrir mér, hvað er lágvöruverslun?  Einhverra hluta vegna eru Bónus og Krónan jafnan tengd við að vera lágvöruverslanir, en ég hef ekki orðið þess var í ferðum mínum í þessar verslanir að vörurnar þar séu eitthvað lægri en annars staðar.  Það er hins vegar alvitað að þessar verslanir eru lágvöruverðsverslanir, þar sem verð er lægra þar en almennt gerist.
mbl.is Lágvöruverslanir hækka mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki endilega hagkvæmara að taka strætó

Ekki er langt um liðið frá 17. júní.  Þann dag gerði fjölskyldan sig reiðubúna undir að fara í bæinn, tvö fullorðin, einn 9 ára strákur og ein 19 mánaða stúlka.  Samtals hefði það gert 280 + 280 + 100 aðra leið, 660 krónur að fara í bæinn, og svo annað eins heim á leið, samtals 1.320 krónur að fara niður í bæ á 17. júní með strætó!

Ég lagði þetta þá upp sem einfalt reikningsdæmi.  Það eru 9 km heiman frá mér og niður í miðbæ Reykjavíkur.  Bíllinn minn eyðir um 8 l/100km, en svona til að vera safe, þá miðaði ég við 8,5 l/100km.  Það þýðir að bíllinn eyðir 0,085l á km.  Ferðin var alls 18 km og eldsneytiseyðslan því 1,53l fram og til baka.  Miðað við eldsneytisverð þennan ágætisdag (minnir að það hafi verið 165kr), þá kostaði þetta litla ferðalag á einkabílnum kr. 252,45 krónur, eða 27,55 krónum minna en eitt fullorðinsfar með strætó!  Ef maður tekur svo fastan kostnað, s.s. tryggingar og gjöld, þá dugar það samt ekki til að gera þessa ferð dýrari með einkabílnum en strætó!

Í mínum huga er þetta afskaplega einfalt, það er of dýrt að ferðast stakar ferðir með strætó.  Það má vel vera að forsvarsmenn strætó séu að beina fólki í miða eða græna kortið (eða hvað sem þessi kort heita í dag), en því miður, þá gagnast það ekki fólki sem notar ekki strætó dags daglega (eins og mín fjölskylda).  Þetta dæmi endaði því þannig að við fórum að sjálfssögðu á einkabílnum, enda hefur forsætisráðherra nýlega hvatt almenning til að minnka einkaneyslu og ég leit á þetta sem sjálfssagðan sparnað.


mbl.is Strætó fækkar vögnunum um 32
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær grínisti fallinn frá

Það er ekki langt síðan ég uppgötvaði George Carlin, en síðan þá hefur hann verið í uppáhaldi hjá mér.  Hans verður saknað, RIP George Carlin.
mbl.is Grínistinn George Carlin er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinny Del Negro tekur við Bulls

Þá eru mínir menn búnir að ráða sér þjálfara.  Þetta er búið að vera langt ferli, en að lokum er það frágengið.  Del Negro er að hefja sinn þjálfaraferil, hann hefur enga þjálfarareynslu, en hann lék 12 tímabil í NBA og þekkir því bransann.  Hann fær vandasamt verk, Bulls náðu ekki að stíga skref fram á við síðasta tímabil, sem voru gríðarleg vonbrigði.  Það er hans hlutverk að hjálpa tiltölulega ungu Bulls liði að taka skrefið fram á við.  Að fá fyrsta valrétt í nýliðavalinu hjálpar honum óneitanlega að komast af stað, þar sem ljóst er að hann getur valið mjög sterkan leikmann til að bæta við liðið. Ég hlakka til að sjá hvaða skref hann tekur til að styrkja liðið.


...og fólki finnst skrítið að það vanti alltaf dómara

Starfsumhverfið sem dómarar þurfa að vinna undir er á köflum ótrúlega ómannúðlegt.  Þessi frétt sýnir það ansi vel að sú pressa sem lögð er á hendur dómara er ótrúleg og að menn skuli hafa viljað drepa dómarann eftir kappleik er alveg út úr kortinu!
mbl.is Pólski forsætisráðherrann vildi drepa Howard Webb
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi til bóta

Ég hef verið með grasfrjókornaofnæmi í mörg ár, og það virðist fara versnandi ár frá ári.  Frá u.þ.b. miðjum júní og fram í ágúst verð ég að bryðja ofnæmislyf og halda mig fjarri þeim stöðum þar sem verið er að slá gras.

Það væri óskandi að nýtt lyf hafi betri virkni gegn ofnæminu, enda er það orðið ansi þreytt að vera rauður og þrútinn um augun og jafnvel með ofsakláða í nefi og augum og líða eins og maður sé með kvef nánast allt sumarið. 


mbl.is Frjókornaofnæmi: Nýtt og betra lyf í þróun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfið staða

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Roma eru komnir í erfiða stöðu eftir leik kvöldsins, þar sem þeir eru komnir 2-0 undir.  Næstu tveir leikir eru á heimavelli Roma og það er alveg nauðsynlegt að Roma klári þá tvo leiki.

Jón byrjaði leikinn vel í kvöld, setti tvö stig og tók fimm fráköst á fyrstu 7 leikmínútum sínum.  Því miður hitti hann ekki vel frekar en hingað til í úrslitakeppninni, en ég bind miklar vonir við að það breytist á heimavelli.  Næsti leikur er á sunnudag og sá leikur ræður úrslitum í einvíginu.  Vinni Siena leikinn, er nánast öruggt að þeir vinni einvígið, takist Roma að klára leikinn á sínum heimavelli opnast einvígið upp á gátt.

Endalaus spenna bara! 


mbl.is Jón Arnór tók 7 fráköst í naumum tapleik gegn Siena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur það verið

Getur það verið að Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, sé að brjóta lög með þessu atferli sínu?  Ég er ekki nógu vel að mér í lögum til að meta það, en mér finnst það í það minnsta siðlaust að skrá lögheimili í annað kjördæmi til að komast á þing og þiggja þingfararkaup rétt eins og hann búi í því kjördæmi.

Ég hafði alltaf trú á Árna, en mér hefur lítið þótt til hans koma á þessu kjörtímabili.  Mér hefur þótt hann vera hrokafullur og jafnvel oft úr takti við þjóðfélagið með ýmsum embættisfærslum, t.d. með því að fella niður skatt af verðbréfaviðskiptum á þeim tímapunkti sem það var gert.

Sjáum hvað gerist í þessu máli á næstu dögum, kannski kemur annar jarðskjálfti eða annar hvítabjörn og þá gleymist þetta fljótt og örugglega. 


mbl.is Segja ráðherra brjóta lög með rangri lögheimilisskráningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur 2 í kvöld

Í kvöld mætast Siena og Roma öðru sinni í úrslitaeinvígi ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.  Roma tapaði fyrsta leiknum á gríðarsterkum heimavelli Siena og því er leikurinn í kvöld gríðarlega mikilvægur, því Roma þarf að vinna einn leik á heimavelli Siena (að því gefnu að þeir klári heimaleikina) til að sigra einvígið.  Yfirleitt er best að vinna annan af tveimur fyrstu á heimavelli andstæðingsins, það setur liðið í þægilegri stöðu, en svo er það bara þannig að það þarf að vinna þessa leiki til að verða meistari.

Karfan.is er að vanda með puttann á púlsinum og birti í morgun viðtal við Jón Arnór, ég hvet alla til að kíkja á það. 


Tilraun til að...

...skerða tjáningarfrelsi Símans.  Ég sé samt ekki fyrir mér að þetta hafi nokkur áhrif á Símann, enda þætti mér það slæmt ef einhver þrýstihópur getur sagt fyrirtæki á Íslandi hvernig það á að haga sínum málum.
mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KKÍ auglýsir eftir starfsmönnum

Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir tvö laus störf á skrifstofu sambandsins

Íþróttafulltrúi
Íþróttafulltrúi starfar á skrifstofu KKÍ og sinnir fjölbreyttum verkefnum
Helstu verkefni:

  • samskipti við FIBA Europe vegna félagaskipta erlendra leikmanna
  • umsjón með heimasíðu KKÍ
  • aðstoð við landsliðsnefndir KKÍ

Hæfniskröfur:

  • þjónustulund
  • metnaður
  • góð alhliða tölvukunnátta

Starf íþróttafulltrúa er nýtt starf og starfið felur því í sér ákveðna þróun starfssins til að byrja með.
Íþróttafulltrúi þarf að hafa gott vald á ensku.

Mótastjóri
Mótastjóri KKÍ starfar á skrifstofu KKÍ og sinnir fjölbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni:

  • halda utan um mótakerfi KKÍ
  • starfa með stjórn og nefndum sambandsins
  • afgreiða erindi sem berast skrifstofu

Hæfniskröfur:

  • skipulagshæfileikar
  • þjónustulund
  • metnaður
  • frumkvæði
  • góð alhliða tölvukunnátta

Starf mótastjóra er umfangsmikið starf.  Mótastjóri þarf að hafa mjög gott vald á ensku.

Umsókn, ferilskrá og mynd berist skrifstofu KKÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík eigi síðar en 9. júní nk. í lokuðu umslagi. Umsækjendur þurfa að tiltaka hvort starfið er sótt um. Nánari upplýsingar veitir Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ í síma 891-6220 eða í tölvupósti fridrik.runarsson@kki.is. Fullum trúnaði heitið.


Kom ekki á óvart

Því miður komu úrslitin í kvöld ekki á óvart, Siena tapaði aðeins þremur leikjum í vetur og eru gríðarsterkir á heimavelli.   Úrslitin eru í sjálfu sér ekki það slæm, viðbúið í fyrsta leik og Roma er þar sem búast mátti við, 1-0 undir.  Næsti leikur er á fimmtudag á heimavelli Siena og þá fá Romarmenn annað tækifæri til að stela leik af Siena.

Morgunblaðið hefur staðið sig vel í umfjöllun um úrslitakeppnina á Ítalíu.  Reyndar væri réttara að ég segi að mbl.is hafi staðið sig vel þar sem ég hef ekki séð Moggann í dágóðan tíma.  Visir.is hefur einnig flutt fréttir af Jóni og félögum og það er vel.  Ég er hins vegar skelfilega vonsvikinn með ljósvakamiðlana.  Það hefur ekkert komið fram á sjónvarps- eða í útvarpsfréttum um úrslitakeppnina á Ítalíu, það mætti halda að það væri bara ekkert í gangi.  Það er hins vegar nóg eftir af úrslitakeppninni og ég vona að þetta breytist.


mbl.is Jón Arnór með 5 stig í tapleik hjá Lottomatica Roma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru jólin

Úrslitakeppni jafnast á við jólin, þvílík stemmning, þvílíkt fjör, þvílík spenna.  Nú er maður að endurupplifa þessar tilfinningar, því Iceland Express deildin kláraðist fyrir nánast einum og hálfum mánuði síðan.  Ég elska úrslitakeppnina og það verður magnað að fylgjast með Jóni Arnóri.  Því miður fáum við ekki að sjá þetta í sjónvarpi, en í staðinn þá treystir maður á beinar netútsendingar (textalýsingar) á ítölsku, það er betra en ekkert.

Fyrstu tveir leikir einvígisins verða á útivelli, fyrst í kvöld og leikur tvö á fimmtudag.  Leikir þrjú og fjögur verða í Róm á sunnudag og þriðjudag og leikir fimm, sex og sjö eru til skiptis á útivelli og á heimavelli Roma.

Áfram Jón Arnór - áfram Roma. 


mbl.is „Kasta í okkur smáhlutum og hrækja inn á völlinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tókst ekki hjá Loga

Logi Gunnarsson og félagar í Gijon höfðu ekki erindi sem erfiði í gær, er þeir töpuðu gegn Urban CLM 78-68.  Tímabilinu er þá lokið hjá Loga og því miður tókst honum ekki að vinna sig upp í gulldeildina með liði sínu.

Karfan.is fylgdist að venju vel með og hér er hægt að lesa frétt um leik gærdagsins og svo er einnig að finna viðtal við Loga. 


Logi í góðum málum

Lítið hefur farið fyrir fréttum af Loga Gunnarssyni í íslenskum fjölmiðlum upp á síðkastið.  Karfan.is hefur gert honum góð skil.  Logi og félagar í Gijon eiga góðan möguleika á að vinna sig upp um deild, en það kemur þá í ljós í kvöld.  Spænski körfuboltinn er gríðarsterkur og spænska ACB deildin er líklegast sú sterkasta í Evrópu.

Takist Loga og félögum að vinna leikinn í kvöld komast þeir upp í gulldeildina, sem er næst efsta deildin á Spáni.  Sendum Loga góða strauma og vonum það besta.


11% ánægja

Þegar ég sá þessa tölu, þá fór ég að velta því fyrir mér hvort þessi ánægja væri kannski í raun meðaumkun með borgarstjóra, sem setið hefur undir ámælum um stjórnunarhætti sína.

Eini meirihlutinn á þessu kjörtímabili sem ég hef stutt var meirhluti D og B, en ég hef fordæmt þær hræringar sem hafa orðið á stjórnháttum borgarinnar síðan þá.  Sá meirihluti sem núna situr, virðist sitja með það eitt að markmiði að halda völdum, því miður.  Að sjálfssögðu er það markmið allra stjórmálamanna að komast til valda og koma þannig stefnumiðum sínum til framkvæmda, það hefur þó farið heldur lítið fyrir því og eitt og annað síst verið til þess fallið að auka ánægju borgarbúa með störf borgarstjórans.  Pólitískar ráðningar, erfiðleikar að svara fyrir pólitískar gjörðir og ákveðin hræsni (að mínu mati) vinna gegn borgarstjóranum sem þarf heldur betur að bretta upp ermarnar ef hann ætlar að lifa þetta pólitíska fárviðri af. 


mbl.is Óánægja með störf borgarstjóra eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband